Nám í flugumferðarstjórn

    1. Almennt
  • Til að fá leyfi til að starfa sem flugumferðarstjóri er nauðsynlegt að hafa skírteini flugumferðarstjóra. Þær kröfur sem þarf að uppfylla til að fá slíkt skírteini er fyrst og fremst að finna í reglugerð um skírteini flugumferðastjóra. Um er að ræða samevrópskar reglur og njóta skírteini flugumferðarstjóra gagnkvæmrar viðurkenningar innan EES á grundvelli EES-samningsins. Lúta kröfurnar m.a. að aldri, menntun og heilbrigði.
    2. Nemaskírteini í flugumferðarstjórn
  • Eitt af skilyrðunum fyrir því að fá gefið út skírteini flugumferðastjóra skv. reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra er að umsækjandi sé handhafi nemaskírteinis í flugumferðarstjórn. Til að fá slíkt skírteini þarf umsækjandi að hafa náð 18 ára aldri og  hafa lokið framhaldsskólanámi sem veitir aðgang að háskóla eða annarri sambærilegri menntun sem gerir umsækjanda kleyft að ljúka námi í flugumferðarstjórn. Jafnframt þarf umsækjandi að vera handhafi gilds heilbrigðisvottorðs og hafa sýnt fram á fullnægjandi tungumálafærni í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Enn fremur þarf umsækjandi að hafa lokið, með fullnægjandi árangri, viðurkenndri grunnþjálfun í flugumferðarstjórn.
    Grunnþjálfun í flugumferðarstjórn fer fram hjá samþykktum þjálfunarstöðvum með starfsleyfi frá Flugmálastjórn Íslands. Á Íslandi er fyrirkomulagið með þeim hætti að tveir aðilar eru með starfsleyfi fyrir grunnþjálfun og eru það Flugskóli Íslands annars vegar og Keilir - Flugakademía hins vegar. Starfsþjálfun er aftur á móti á höndum Isavia ohf. sem jafnframt er eini veitandi flugumferðarþjónustu hér á landi.
    Að grunnþjálfun lokinni og að öðrum skilyrðum uppfylltum er gefið út nemaskírteini í flugumferðarstjórn. Nemaskírteinið veitir skírteinishafa rétt til að veita flugstjórnarþjónustu undir eftirliti starfsþjálfara. Nemaskírteinið veitir hins vegar skírteinishafa ekki rétt til að komast að í starfsþjálfun. Til að komast í starfsþjálfun þarf skírteinishafi að sækja um hjá veitanda flugumferðarþjónustu. Veitanda flugumferðarþjónustu ber aftur á móti ekki nein skylda til að taka umsækjendur í starfsþjálfun. Líkt og tíðkast á almennum vinnumarkaði ræðst slíkt af mönnunarþörf hverju sinni.
    Nemaskírteinið nýtur gagnkvæmrar viðurkenningar á grundvelli EES-samningsins og getur skírteinishafi á grundvelli þess sótt um að komast að í starfsþjálfun hjá veitanda flugumferðarþjónustu innan EES. Athuga ber þó að áritun í nema skírteini gildir aðeins í fjögur ár. Líði meira en fjögur ár frá því að nemi fær skírteini með áritun og/eða viðbótaráritun má nemi því aðeins hefja starfsþjálfun að farið hafi fram viðeigandi mat á því hvort hann uppfylli ennþá skilyrði fyrir þessari áritun eða viðbótaráritun og eftir að öllum þjálfunarkröfum sem leiða af þessu mati hefur verið fullnægt.
    Rétt er að vekja athygli á því að fyrirkomulag náms í flugumferðarstjórn er ekki með nákvæmlega sama sniði í öllum ríkjum innan EES. Í mörgum ríkjum er fyrirkomulagið þannig að veitandi flugumferðarþjónustu annast jafnframt grunnþjálfun í flugumferðarstjórn. Þar sem þannig er staðið að málum þá lýkur umsækjandi bæði grunnþjálfun og starfsþjálfun hjá sama aðila og fær að lokum starf standist hann öll skilyrði. Einnig er í mörgum tilvikum krafist færni í því tungumáli sem talað er í viðkomandi landi. Hér að neðan má sjá einfaldaða skýringarmynd af þessum mismunandi leiðum. (Leið A er sú leið sem boðið er upp á hér á landi.):
    flugumferðastjórar
    3. Skírteini flugumferðarstjóra
  • Eins og rakið hefur verið hér að framan þá er nemaskírteini í flugumferðarstjórn skilyrði fyrir því að fá gefið út skírteini flugumferðarstjóra. Meðal annarra skilyrða má nefna að umsækjandi þarf að hafa náð 21 árs aldri, vera með gilt heilbrigðisvottorð og hafa sýnt fram á tungumálafærni skv. reglugerðinni. Ennfremur þarf umsækjandi að hafa lokið starfsþjálfun í flugstjórnardeild hjá veitanda flugumferðarþjónustu með fullnægjandi árangri og staðist viðeigandi próf.