Blindflugsáritun (IR)

Blindflugsáritun (IR) gildir í eitt ár frá útgáfudegi eða frá dagsetningu þegar hún fellur úr gildi ef hún er framlengd á gildistímanum.

    Til að framlengja blindflugsáritun á flugvél, IR(A) sem er í gildi:
  • þarf umsækjandinn að ljúka á fullnægjandi hátt blindflugshluta viðkomandi hæfniprófs. Ef unnt er skal taka prófið um leið og hæfnipróf fyrir flokks- eða tegundaráritun. (Sjá JAR-FCL 1.246 (a)).
  • Ef áritunin er takmörkuð við fjölstjórnarstarfrækslu skal taka hæfniprófið í fjölstjórnarumhverfi.(Sjá JAR-FCL 1.185(b)).
  • Ef hæfniprófið er ekki tekið um leið og prófið fyrir tegundar- eða flokksáritun skal uppfylla kröfur í JAR-FCL 1.246(a)(2).

    Til að endurnýja blindflugsáritun á flugvél IR(A) sem er fallin úr gildi skal umsækjandi:
  • uppfylla þær kröfur sem Flugmálastjórn ákveður.
  • standast hluta 3b, blindflugshlutann, í hæfniprófi á einstjórnarflugvél ásamt undirbúningi flugs. (Sjá JAR-FCL 1.246(b)).
  • Ef blindflugáritun hefur ekki verið í gildi í 7 ár skal umsækjandi standast á ný bóklegt blindflugspróf.

    Til að framlengja blindflugsáritun á þyrlu, IR(H) sem er í gildi skal umsækjandi:
  • ljúka á fullnægjandi hátt blindflugshluta viðkomandi hæfniprófs.
  • Ef unnt er skal taka prófið um leið og hæfnipróf fyrir tegundaráritun. (Sjá JAR-FCL 2.185 (a) og 2.245(a)(4)).
  • Ef áritunin er takmörkuð við einstjórnarþyrlu skal taka hæfniprófið annað hvort í ein- eða fjölstjórnarþyrlu.
  • Ef áritunin er takmörkuð við fjölstjórnarþyrlu skal taka prófið í fjölstjórnarstarfrækslu.(Sjá JAR-FCL 2.185(b)).

    Til að endurnýja blindflugsáritun á þyrlu IR(H) sem er fallin úr gildi skal umsækjandi:
  • uppfylla kröfur sem Flugmálastjórn ákveður
  • standast blindflugshlutann í viðkomandi hæfniprófi.

Ef blindflugáritun hefur ekki verið í gildi í 7 ár skal handhafi standast á ný bóklegt blindflugspróf (Sjá JAR-FCL 1.495/2.495(b)).

Ef blindflugshæfnipróf er tekið eitt og sér án þess að taka um leið hæfnipróf fyrir flokks- eða tegundaráritun skal umsækjandi varðandi:

    Framlengingu áritunar:
  • Standast hluta 3b í hæfniprófi fyrir einstjórnar flugvél, þ.e. blindflugshlutann, og þau atriði í hluta 1 sem eiga við áætlað flug.
  • Standast hluta 6 af hæfniprófi fyrir einstjórnar- fjölhreyflaflugvél
    Nota má FNPT II eða flughermi, en annað hvert próf skal fara fram í flugvél.

    Endurnýjun áritunar ef hún er útrunnin:
  • Uppfylla allar kröfur sem Flugmálastjórn gerir.
  • Standast lið 3b í blindflugshluta hæfniprófs í einstjórnarflugvél.