Breyting útgáfuríkis skírteinis.JAR-FCL-skírteinin eiga að gilda til að stjórna loftförum sem eru skráð í öllum aðildarríkjum JAA. Stundum getur samt verið hagræði í því að flytja skírteinið frá einu aðildarríki til annars, t.d. vegna hæfniprófa, eða þá að flugrekandi gerir kröfu um það við ráðningu. Þetta má þó aðeins gera ef flugmaður flytur búsetu sína frá útgáfuríki skírteinis síns til annars aðildarríkis JAA eða hefur flugmannsstörf í öðru aðildarríki. Þegar svo er háttað þarf að sækja um flutning skírteinis hjá verðandi útgáfuríki.
Til að flytja skírteini til Íslands þarf að fylla út sérstakt eyðublað
(Application to change the state of issue of a JAR-FCL licence to Iceland) sem fæst í skírteinadeild. Síðan hefur skírteinadeild FMS samband við útgáfuríki skírteinisins og biður um nauðsynlegar upplýsingar.
Það getur tekið nokkurn tíma þar til svar berst.
Sjá Reglugerð um skírteini flugliða á þyrlu nr.
402/2008, Reglugerð um skírteini flugliða á flugvél nr.
401/2008, sbr.
600/2009 grein JAR-FCL 1.065/2.065 (d).