Framlenging og endurnýjun áritana í JAR-FCL skírteini

Hæfnipróf til að framlengja áritanir skal taka hjá prófdómara sem hefur hlotið leyfi aðildarríkis JAA. Prófdómari í öðru aðildarríki JAA á að geta eins og íslenski prófdómarinn skráð í skírteinið nýjan gildistíma áritunarinnar þegar um framlengingu er að ræða. Lög einstakra ríkja heimila þetta þó ekki. Prófdómarinn skal að prófi loknu koma frumgögnum prófa til flugmálstjórnar útgáfu ríkis skírteinisins.

Færnipróf umsækjanda um íslenskt skírteini eða áritanir skal prófdómari með leyfi frá Flugmálastjórn Íslands framkvæma. Sækja skal um prófið í skírteinadeild flugöryggis¬sviðs. Flugmálstjórn ákveður hver prófar.

Fartímakröfur teljast uppfylltar þó að flugið hafi farið fram erlendis í erlendu loftfari. Þetta á samt ekki við um kennslutíma.

Fartímakröfur með kennara eða prófómara teljast aðeins uppfylltar ef kennarinn/ prófdómarinn hefur viðkomandi réttindi í gildi í samræmi við JAR-FCL.

Kröfur um upprifjunarþjálfun ákveðast af Flugmálstjórn í samvinnu við skóla eða kennara.

Tegundar- og flokksáritanir á fjölhreyfla flugvélar gilda í eitt ár frá útgáfu og frá framlengingu eða endurnýjun áritunar. (Sjá JAR-FCL 1.245(a))

    Til að framlengja áritun á fjölhreyfla flugvél sem enn er í gildi skal umsækjandi
  • ljúka hæfniprófi á tegund eða flokk á síðustu þremur mánuðum áður en áritunin fellur úr gildi og
  • hafa að baki minnst 10 flug í viðkomandi tegund eða flokki, eða eitt flug með prófdómara, meðan áritunin er í gildi (Sjá JAR-FCL 1.245 (b))

Til að halda blindflugsáritun í gildi skal helst taka hæfnipróf um leið og ofannefnd hæfnipróf.

    Til að endurnýja áritun á fjölhreyfla flugvél sem er fallin úr gildi skal umsækjandi
  • uppfylla kröfur Flugmálastjórnar um upprifjun eins og metið er í hverju tilfelli fyrir sig.
  • ljúka færni- eða hæfniprófi eftir því sem við á.

Áritunin gildir síðan frá þeim degi sem allar kröfur eru uppfylltar (Sjá JAR-FCL 1.245(f)).

Flokksáritanir á einshreyfils flugvélar (SEP) gildir í tvö ár.

    Til að framlengja áritun í gildi skal umsækjandi (sjá JAR-FCL 1.245(c)(1)) 
  • ljúka hæfniprófi á síðustu þremur mánuðum gildistímans í einshreyfilsflugvél eða ferðavélsvifflugu (TMG) eða
  • hafa á síðustu 12 mánuðum gildistímans lokið 12 fartímum í einshreyfilsflugvél með bulluhreyfli (SEP) eða ferðavélsvifflug (TMG) og þarfaf áunnið sér 6 fartíma og gert 12 flugtök og lendingar og farið í einnar klukkustundar æfingaflug með flugkennara (FI eða CRI). Í stað þess flugs getur komið hvaða færni- eða hæfnipróf fyrir flokks- eða tegundaráritun. (Sjá JAR-FCL 1.245(c)(1)).

    Til að endurnýja áritun á einshreyfilsflugvél sem er fallin úr gildi skal umsækjandi ljúka færniprófi (Sjá JAR-FCL 1.245(f))
  • annað hvort á SEP(A) eða TMG eða
  • sambland af ofangreindum flokkum.

    Flutningur farþega
  • Til þess að mega flytja farþega þarf að uppfylla kröfur í JAR-FCL 1.026 (a)  og 2.026(H).
    Á síðustu 90 dögum þarf að hafa gert þrjú flugtök og lendingar á flokk fyrir flugvél og sömu tegund fyrir þyrlu.