Hvers konar skírteini flugmanna eru í gildi?
Tvenns konar skírteini flugmanna eru í gildi í dag;
- Innlend skírteini sem voru gefin út fyrir 1. júlí 2002 þegar þriggja ára aðlögunartími að kröfum JAR-FCL 1 var liðinn. Þau skírteini gilda aðeins til að stjórna flugvélum sem eru skrásettar á Íslandi. Ekki eru lengur gefin út ný innlend skírteini flugmanna á flugvélar og þyrlur.
- JAR skírteini sem gilda á loftför skráð í aðildarríkjum JAA. JAR skírteini gefin út á Íslandi eða í öðru aðildarríki JAA gilda til að stjórna íslenskum loftförum. Sjá lista yfir aðildarríki JAA.
Hvað þarf að gera til að fá útgefið skírteini flugmanns á flugvél?
Fyrst þarf að snúa sér til flugskóla til að skrá sig í flugnám.
Tvenns konar flugskólar eru í landinu:
- Skráðir flugskólar þar sem kennt er fyrir einkaflugmannsskírteini
- Samþykktir flugskólar þar sem einnig er kennt fyrir atvinnuflugmannsskírteini auk fleiri námskeiða, t.d. fyrir blindflugsáritun og flugkennaraáritun.
Tvenns konar nám er leyfilegt:
- Samtvinnað bóklegt og verklegt heildarnám frá upphafi til lokaprófs fyrir atvinnuflugmannsskírteini
- Áfangaskipt nám sem fer fram á aðskildum námskeiðum. Í fyrsta áfanga eru bókleg og verkleg námskeið fyrir einkaflugmannsskírteini. Annar áfangi er fyrir atvinnuflugmannsskírteini og þriðji er fyrir blindflugsáritun, sem einnig er hægt að taka á undan atvinnuflugmannsskírteini.
Einungis er í boði áfangaskipt nám hér á landi.
Er hægt að læra að fljúga erlendis?
Það er hægt í öllum aðildarríkjum JAA ef skólinn er samþykktur í samræmi við JAR-FCL.
Í mörgum aðildarríkjum JAA er hægt að komast á samtvinnað heildarnámskeið. Að námi og prófi loknu fæst útgefið JAR-skírteini viðkomandi ríkis. Það skírteini gildir til að stjórna loftförum skráðum á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum JAA. Síðan er hægt að skipta skírteininu í íslenskt JAR-skírteini ef umsækjandi er búsettur eða vinnur á Íslandi. Til eru skólar í löndum, sem ekki eiga aðild að JAA, en hafa samt verið samþykktir í samræmi við JAR af aðildarríki JAA. Vitað er um skóla í Bandaríkjunum sem breska flugmálastjórnin hefur samþykkt og að loknu námi og prófum þar fást útgefin bresk JAR-skírteini. Allt nám fyrir útgáfu skírteinis þarf að fara fram í sama ríki. Það ríki heldur prófin og tekur ábyrgð á útgáfu skírteinisins. Síðan er hægt að fara í nám fyrir áritun í skírteini í öðrum aðildarríkjum JAA en því sem gaf út skírteinið. Allar áritanir eru samt skráðar í skírteinið í útgáfuríki þess. Sé farið í flugnám erlendis í skóla í landi sem er ekki aðildarríki JAA og skólinn ekki samþykktur af aðildarríki JAA í samræmi við JAR og fengið þar útgefið innlent skírteini veitir skírteinið ekki réttindi til að stjórna loftförum skrásettum á Íslandi. Til þess að breyta skírteininu í JAR-skírteini þarf handhafi atvinnuflugmannsskírteinis að taka öll verkleg og bókleg JAR próf, en stytta má námið í samræmi við þekkingu og færni umsækjanda eftir mat. Þeir sem þannig hafa fengið útgefið einkaflugmannsskírteini og hafa 100 fartíma þurfa til þess að breyta skírteininu í JAR skírteini að taka færnipróf og tvö bókleg próf. JAA heilbrigðisvottorð þarf fyrir öll JAR-skírteini. Sjá grein JAR-FCL 1.016 í reglugerð nr. 401/2008 sem er um skírteini flugmanna á flugvél.
Hvaða reglur gilda um heilbrigðisvottorð?
Skylt er að hafa gilt heilbrigðisvottorð til að fá útgefið skírteini og til að halda skírteininu í gildi. Heilbrigðisvottorðið þarf að vera í gildi þegar farið er í færni- eða hæfnipróf og fyrsta einflug. Samþykktir fluglæknar gefa út heilbrigðisvottorð fyrir umsækjendur um skírteini flugmanna.
Fyrir flugmenn er um tvenns konar heilbrigðisvottorð að ræða:
- 1. flokks vottorð þarf fyrir atvinnuflugmenn. Það gildir í eitt ár til fertugs og í 6 mánui eftir það til að fljúga í einstjórnarflugvélum og eftir sextugt til að fljúga fjölstjórnarflugvélum.
- 2. flokks vottorðs þarf fyrir einkaflugmenn. Það gildir í 60 mánuði til fertugs og síðan í 24 mánuði til fimmtugs og í 12 mánuði eftir það. Einkaflugmenn með blindflugsréttindi þurfa að uppfylla heyrnarkröfur sem gerðar eru fyrir 1. flokks vottorðs. Sjá reglugerð um heilbrigðiskröfur flugliða nr. 403/2008
Hvaða fluglæknar starfa á Íslandi?
Í Reykjavík starfa fluglæknar í Fluglækningastofnun í Ármúla 1 A. Einnig eru fluglæknar á Akureyri, Egilstöðum og á Ísafirði.