Hvað þarf að gera til að verða flugmaður?
Til þess að stjórna loftfari (flugvél, þyrlu, svifflugu, fisi) er skylt að vera handhafi sérstakra skírteina.
Kröfur sem gerðar eru til þess að fá útgefin skírteini flugmanna eru í Reglugerðum um skírteini sem byggist á stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO Annex 1) og kröfum flugöryggissamtaka Evrópu (JAA) um skírteini flugliða, JAR-FCL. JAR-FCL 1, kröfur fyrir flugmenn á flugvél tóku fyrst gildi hér á landi 1. júlí 1999.
Núgildandi reglugerðir um flugstarfaskírteini eru:
- Rg. nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands.
- Rg. nr. 401/2008 um skírteini flugmanna á flugvél.
- Rg. nr. 402/2008 um skírteini flugmanna á þyrlu.
- Rg. nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða.
- Rg. nr. 404/2008 um skírteini flugumferðarstjóra.