Hvað þarf að gera til að verða svifflugmaður?
Til þess að fljúga svifflugu þarf að vera handhafi skírteinis svifflugmanns. Til þess að komast í nám fyrir skírteinið þarf að skrá sig hjá Svifflugfélagi Íslands á Sandskeiði eða Svifflugfélagi Akureyrar sem er með aðstöðu við Melgerðismela, sem sjá bæði um bóklegt og verklegt nám sem Flugmálastjórn hefur samþykkt. Að loknu bóklegu námskeiði heldur Flugmálstjórn bókleg próf og þarf að lágmarki 75% réttra svara. Verklega námið er minnst 12 fartímar í svifflugum, þar af 5 tíma einflug og 20 flugtök og lendingar. Fjöldi flugferða skal vera minnst 45. Skírteinið er gefið út í skírteinadeild flugöryggissviðs Flugmálstjórnar og umsækjandi þarf að vera minnst 16 ára gamall og vera handhafi 2. flokks heilbrigðisvottorðs í gildi.
Hvað má handhafi skírteinis svifflugmanns gera?
Svifflugmaður má stjórna svifflugum en þó ekki hafa meðferðis farþega fyrr en hann hefur að baki sér 10 fartíma sem svifflugmaður.
Til þess að viðhalda skírteininu þarf á 24 mánaða tímabili 12 flugferðir í minnst 3 klst eða hæfnipróf. Heilbrigðisvottorðið þarf að vera í gildi. Til þess að fljúga vélsvifflugum þarf viðbótarnám sem Flugmálastjórn hefur samþykkt. Sjá grein 2.9 í Reglugerð nr. 400/2008 um skírteini.
Hvað þarf að gera til að verða fisflugmaður?
Til að stjórna fisi í íslenskri lofthelgi þarf að vera handhafi skírteinis fisflugmanns og vera félagi í fisfélagi viðurkenndu af Flugmálstjórn. Umsækjandi um skírteini fisflugmanns skal hafa hlotið bóklega og verklega kennslu hjá viðurkenndu fisfélagi og lokið prófum sem Flugmálastjórn hefur samþykkt. Hann skal hafa lokið minnst 12 fartímum sem flugmaður í hreyfilknúnu fisi, þar af 3 klst einn og framkvæmt minnst 15 flugtök og lendingar og 40 flugferðir á síðustu 18 mánuðum fyrir umsókn. Fis (microlight) er mjög létt loftfar, landfis skal vera innan við 300 - 450 kg og láðs- lagarfis 330 - 495 kg. Fallhlífar eru ekki fis.
Umsækjandi um skírteini fisflugmanns sem gefið er út í skírteinadeild flugöryggissviðs Flugmálastjórnar skal vera minnst 16 ára og vera handhafi 2. flokks heilbrigðisvottorðs í gildi.
Hvað má handhafi skírteinis fisflugmanns gera?
Fisflugmaður má fljúga fisi í samræmi við þær áritanir sem hann hefur í skírteininu. Hann má flytja farþega ef hann hefur flogið minnst 25 fartíma sem handhafi skírteinis fisflugmanns og gert 3 flugtök og 3 lendingar í fisi á síðustu 3 mánuðum. Til þess að viðhalda skírteini þarf á 24 mánuða tímabili minnst 8 flugferðir í samtals 2 klst og heilbrigðisvottorð. Sjá grein 2.11 í Reglugerð nr. 400/2008 um skírteini. Sjá einnig reglugerð um fis.
Hvaða reglur gilda um flugdagbók?
Allir flugmenn eiga sjálfir að færa flugdagbók. Flugdagbókin á alltaf að fylgja með öllum umsóknargögnum sem lögð eru inn til skírteinadeildar. Sjá grein 1.080 í reglugerð nr. 401/2008 um hvernig færa skal flugdagbók.
Hvaða reglur gilda um heilbrigðisvottorð?
Skylt er að hafa gilt heilbrigðisvottorð til að fá útgefið skírteini flugmanns og til að halda því í gildi. Heilbrigðisvottorðið þarf að vera í gildi þegar farið er í færni- eða hæfnipróf og fyrsta einflug.
Fyrir flugmenn er um tvenns konar heilbrigðisvottorð að ræða:
- 1. flokks vottorð fyrir atvinnuflugmenn
- 2. flokks vottorð fyrir einka-, svif- og fisflugmenn gildir í 60 mánuði til fertugs, síðan í 24 mánuði til fimmtugs og í 12 mánuði eftir það.
Heilbrigðisskoðanir fara fram hjá fluglæknum sem til þess hafa hlotið samþykki Flugmálastjórnar í samræmi við kröfur JAA í JAR-FCL 3. Fluglæknar starfa ýmist í samþykktum fluglæknasetrum eða sjálfstætt. Hægt er að fara í heilbrigðisskoðanir hjá samþykktum fluglæknum í öðrum aðildarríkjum JAA, þó ekki í fyrstu skoðun vegna útgáfu skírteinis. Fyrsta 1. flokks heilbrigðisskoðun þarf að fara fram í fluglæknasetri. Sjá JAR-FCL í Reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur. Sjá lista yfir fluglækna á Íslandi á síðunni Almennt um skírteini.