Reglur varðandi handfarangur
Reglur um innihald og magn vökva sem farþegar mega hafa með sér í flug tóku gildi innan Evrópubandalagsins og EFTA-ríkjanna (Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss) þann 6. nóvember 2006.  Reglur þessar gilda um allt millilandaflug til og frá Íslandi og um öll flug innan Evrópusambandalagsins og EFTA ríkjanna.  Innanlandsflug á Íslandi er undanþegið.  Þessar reglur takmarka það sem farþegum er heimilt að bera með sér í handfarangri inn fyrir öryggishlið. 


Smellið á tenglana hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um reglurnar;

Information in English / download a brochure  (requires Adobe Acrobat PDF reader)

Gildandi reglur um flutning vökva í lestarfarangri í flugvélum haldast óbreyttar.  Þess ber að geta að flugrekendur geta takmarkað stærð farangurs frekar.  Upplýsingabæklingur liggur frammi á Keflavíkurflugvelli, Egilstaðarflugvelli, Akureyrarflugvelli og helstu ferðaskrifstofum.

Reglur sem takmarka stærð handfarangurs sem farþegar mega taka með sér í flug taka gildi 6. maí 2007.

Bæklingur um hertar reglur vegna handfarangurs