Hvernig ferðast ég með vökva sem keyptur er eftir öryggisskoðun og um borð í flugvél?
Farþegar geta eftir sem áður keypt allan vökva og aðrar vörur innan biðsvæðis flugstöðva Evrópska Efnahagssvæðisins, en vörur sem seldar eru á því svæði hafa sætt sérstakri skoðun. Ef flogið er beint á áfangastað frá Íslandi má vera með allan vökva í handfarangri sem keyptur er á biðsvæðinu.
Ef farið er í tengiflug skoðið eftirfarandi reglur vandlega:
Flug frá Íslandi til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins með tengiflugi.
- Vökvi, sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun eða um borð í flugvél skráðri í ríki innan Evrópska Efnahagssvæðisins, skal vera í poka innsigluðum af þeirri verslun þar sem varan var keypt þar til á áfangastað er komið.
- Þegar farið er í gegnum öryggisskoðun í því landi, sem tengiflug á sér stað, verður að framvísa kvittun sem staðfestir innihald pokans og kaup þennan dag við öryggishlið sé þess óskað.
- Í þeim tilvikum þar sem farþegar ná í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug, eða farangur hefur ekki verið innritaður alla leið, er vörunum best fyrir komið í farangri sem ætlaður er til innritunar.
Flug frá Íslandi til Norður-Ameríku (Bandaríkjanna/Kanada) með tengiflugi.
- Vökva, sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun eða um borð í flugvél, verður að setja í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug.
- Tækifæri til þess gefst eftir að farþegar hafa farið í gegnum tollskoðun við komuna í flugstöð í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada).
Flug til Íslands frá Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
- Vökva, sem keyptur er áður en farþegi innritar sig í flug, skal koma fyrir í innritunarfarangri.
- Ekki er heimilt að fara með vökva í handfarangri sem keyptur er í verslunum eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnhagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi jafnvel þótt hann sé í innsigluðum umbúðum.
- Heimilt er að fara með vökva sem keyptur er um borð í flugvél skráðri í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi ef varan er í innsigluðum poka. Farþegi verður einnig að geta framvísað kvittun sem staðfestir innihald pokans og kaupdagsetningu sé þess óskað af öryggisvörðum.
Athugið að þegar vökvi hefur verið settur í innsiglaða poka af viðkomandi verslun má ekki rjúfa innsiglið á meðan farþegi er staddur í flugstöð eða á ferð í flugvél. Ef farþegi sætir öryggisskoðun áður en komið er út úr flugstöð og innsigli pokans hefur verið rofið er farþega ekki heimilt að fara með vökvann í gegnum öryggiseftirlit.