Sjá einnig skýrslu Evrópusambandsins frá mars 2011 - Impact assessment of passenger protection in the event of airline insolvency.
Er Flugmálastjórn með eitthvert ferli sem fer í gang ef flugfélag/flugrekandi eða ferðaskrifstofa (sem selur farmiða en ekki alferð) fer í gjaldþrot eða í greiðslustöðvun?
Flugmálastjórn Íslands hefur eftirlit með íslenskum flugrekendum hvort þeir uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til rekstrar slíks fyrirtækis og sem byggja á reglugerðum Evrópubandalagsins og alþjóðlegum stöðlum. Stofnunin hefur ekki eftirlit með ferða- og farmiðasölu íslenskra flugrekenda. Flugmálastjórn ber ábyrgð á að framfylgja reglugerð nr. 574/2005 um réttindi flugfarþega. Í henni er kveðið á um rétt farþega gagnvart flugrekanda hvað varðar, seinkanir í flugi, aflýsingar flugs og þegar farþega er neitað um far. Einnig ber Flugmálastjórn ábyrgð á að framfylgja reglugerð um vernd og aðstoð við fatlaða farþega í flugi, nr. 475/2008 sem kveður á um réttindi þeirra á þjónustu í flugi.
Stofnunin hefur ekki eftirlit með ferðaskipuleggjendum né umsýsluaðilum í ferðamálum.
Hver er réttarstaða flugfarþega í fjárhagserfiðleikum flugrekenda og ferðaskrifstofa?
Réttarstaða flugfarþega í fjárhagserfiðleikum flugrekenda og ferðaskrifstofa er misjöfn eftir því hvaða þjónusta hefur verið keypt, af hverjum og hvar. Í raun má segja að réttarstaða flugfarþega sé best tryggð með kaupum á alferð hjá ferðaskrifstofu með ferðaskrifstofuleyfi.
Í grunninn gildir sú regla að ef keypt er svo kölluð alferð hjá ferðaskrifstofu sem hefur tilskilið ferðaskrifstofuleyfi gefið út af Ferðamálastofu og ferðaskrifstofan lendir í fjárhagserfiðleikum þá tekur skyldutrygging ferðaskrifstofunnar yfir. Í 14. grein laga um skipan ferðamála nr. 73/2008 segir “Ferðaskrifstofa skal hafa tryggingu fyrir endurgreiðslu fjár sem viðskiptavinur hefur greitt vegna alferðar sem enn er ófarin og til heimflutnings viðskiptavinar úr alferð, hvort sem hann er innan lands eða erlendis, komi til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar ferðaskrifstofu. Trygging skal einnig ná til þess að gera viðskiptavini kleift að ljúka alferð í samræmi við upphaflega áætlun hennar.”
Hafi hins vegar ekki verið keypt alferð af ferðaskrifstofu með ferðaskrifstofuleyfi eins og algengt er í dag þ.e.a.s. í kaupunum felst aðeins flug á milli staða A og B sem annað hvort er keypt af ferðaskrifstofu eða beint af flugrekanda í gegnum heimasíðu flugrekandans breytist réttarstaðan umtalsvert. Þá koma ekki samskonar skyldutryggingar og ef um alferð væri að ræaða og getur farþegi þá eingöngu lýst kröfu í þrotabú vegna þess kostnaðar sem hann verður fyrir komi til gjaldþrots. Sama á við ef ferð er keypt af umsýsluaðila.
Hvað er flugrekandi og er hægt að tryggja sig fyrir gjaldþroti hans?
Flugrekandi er einstaklingur, fyrirtæki eða stofnun sem stundar eða býðst til að stunda rekstur loftfars í atvinnuskyni. Flugrekandi þarf tilskilin leyfi Flugmálastjórnar Íslands (flugrekstrarleyfi) og sæta íslenskir flugrekendur eftirliti Flugmálastjórnar Íslands. Reglugerð nr. 969/2008 fjallar um veitingu flugrekstrarleyfa, markaðsaðgang flugrekenda, fargjöld og farmgjöld í flugþjónustu innan evrópska efnahagssvæðisins og innleiðir reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2407/92 um veitingu flugrekstrarleyfa til handa flugfélögum. Þar kemur fram krafa um að flugrekandi skuli skila inn fjárhagsáætlun og efnahagsreikningi vegna árlegs viðhalds flugrekstrarleyfisins. Þá kemur einnig fram krafa um að flugrekandi geti í þrjá mánuði frá upphafi rekstrar staðið undir föstum útgjöldum og rekstrarkostnaði vegna starfsemi samkvæmt viðskiptaáætlun og á grundvelli raunhæfra forsendna án þess að tekið sé tillit til tekna af rekstri félagsins.
Auk þess getur Flugmálastjórn Íslands kallað eftir fjárhagsgögnum íslenskra flugrekenda hvenær sem er.
Komi hins vegar einhverra hluta vegna til greiðslustöðvunar eða gjaldþrots íslensks flugrekanda og hann getur ekki haldið úti fullri starfssemi þessa þrjá mánuði hefur farþegi, hvort sem ferð er hafin eður ei, eingöngu kröfu í þrotabúið. Í sumum tilvikum er þó hægt að leita til greiðslukortafyrirtækis og óska eftir endurgreiðslu hafi flugmiði verið greiddur með greiðslukorti.
Hvað er alferð?
Í lögum um alferðir nr. 80/1994 segir:
- Alferð er fyrir fram ákveðin samsetning ekki færri en tveggja eftirfarandi atriða, þegar ferð er seld eða boðin til sölu á heildarverði og þegar þjónustan tekur til lengri tíma en 24 klst. eða í henni felst gisting:
- a.flutnings,
- b.gistingar,
- c.annarrar þjónustu við ferðamenn sem tekur til verulegs hluta ferðarinnar.
- Það telst alferð þótt reikningar séu gerðir sérstaklega fyrir hvert atriði.
Hvað er ferðaskrifstofa?
Samkvæmt lögum um skipan ferðamála merkir ferðaskrifstofa aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili, sem setur saman, býður fram og selur alferðir í atvinnuskyni, hvort sem er að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, innan lands eða erlendis. Ferðaskrifstofa getur jafnframt haft með höndum og veitt alla þá ferðatengdu þjónustu sem ferðaskipuleggjandi gerir, hvort sem hún er veitt í formi alferða eða ekki. Hugtakið ferðaskrifstofa nær bæði til ferðaheildsala og ferðasmásala samkvæmt lögum nr. 80/1994, um alferðir.
Hver sá sem hyggst starfa sem ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa skal hafa til þess leyfi Ferðamálastofu.
Á heimasíðu Ferðamálastofu má finna lista yfir útgefin ferðaskrifstofuleyfi. Á heimasíðu Ferðamálastofu má finna lista yfir útgefin leyfi ferðaskipuleggjanda.
Hvaða reglur gilda ef farþegi kaupir bara farmiða í gegnum ferðaskrifstofu (ekki alferð)?
Ef farþegi kaupir eingöngu farmiða í gegnum ferðaskrifstofu þ.e.a.s. ekki alferð verður hann sjálfur að leggja út fyrir þeim kostnaði sem af því hlýst að komast heim aftur sé ferð hafin og á þá val um að lýsa kröfu í þrotabú ferðaskrifstofunnar.
Eru flugrekendur með ábyrgðir til að ábyrgjast það að farþegar sem staddir eru erlendis komist heim sér að kostnaðarlausu og til að endurgreiða þeim sem hafa greitt farmiða að fullu eða að hluta og ferð er ófarin?
Skyldutrygging sú sem skilyrði er fyrir ferðaskrifstofuleyfi gildir eingöngu ef keypt hefur verið alferð. Í skilyrðum fyrir útgáfu flugrekstrarleyfis og endurnýjun þess þar sem krafist er að flugrekandi geti í þrjá mánuði frá upphafi rekstrar staðið undir föstum útgjöldum og rekstrarkostnaði vegna starfsemi samkvæmt viðskiptaáætlun og á grundvelli raunhæfra forsendna án þess að tekið sé tillit til tekna af rekstri félagsins er ekki ákvæði um að flugrekandinn haldi áætlunarflugi óbreyttu né geti eða sé ábyrgur fyrir því að endurgreiða keypta farmiða eða þjónustu komi til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar.
Hvernig og hvert eiga farþegar, sem staddir eru erlendis og hafa ekki lokið ferð þegar flugrekandi fer í þrot, að snúa sér?
Sé ekki um alferð að ræða keypta af ferðaskrifstofu með ferðaskrifstofuleyfi eiga farþegar kröfu á þrotabúið vegna þess kostnaðar sem þeir verða fyrir vegna heimferðar.
Hvert eiga farþegar, sem ekki hafa byrjað ferð en greitt hafa farmiða að fullu eða að hluta, að snúa sér?
Farþegar geta lýst kröfu í þrotabúið,
Möguleiki er að leita eftir endurgreiðslu til greiðslukortafyrirtækis, hafi farseðill verið greiddur með greiðslukorti.
Hvaða reglur gilda um réttindi flugfarþega ef fyrirtæki eins og Icelandair eða Iceland Express fara í gjaldþrot eða rekstrarstöðvun?
Ef keypt er alferð í gegnum Icelandair sem hefur flugrekstrar- og ferðaskrifstofuleyfi tekur skyldutrygging sem er eitt af skilyrðum ferðaskrifstofuleyfisins við og bætir flugfarþeganum tjónið. Ef keypt er önnur þjónusta en alferð af Icelandair og fyrirtækið fer í gjaldþrot eða rekstrarstöðvun á farþeginn kröfu í þrotabú félagsins.
Hvað varðar Iceland Express sem samkvæmt opinberum upplýsingum í hluthafaskrá annast skipulagningu áætlunarflugs og flugreksturs en er þó ekki flugrekandi og hefur ekki flugrekstrarleyfi. Fari fyrirtækið í gjaldþrot eða rekstrarstöðvun á farþeginn kröfu í þrotabú félagsins. Í dag er það flugrekandinn Astreus sem flýgur fyrir Iceland Express. Astreus hefur breskt flugrekendaskírteini og ber ekki ábyrgð á að alferð gangi eftir sé ferð hafin.
Gilda mismunandi reglur varðandi þessi tvö félög?
Icelandair er íslenskur flugrekandi og hefur íslenskt flugrekstrarleyfi sem og ferðaskrifstofuleyfi. Alferðir keyptar hjá þeim eru því tryggðar samkvæmt ákvæðum í ferðaskrifstofuleyfi. Vegna annarra ferða og þjónustu á farþegi kröfu í þrotabúið komi til gjaldþrots.
Iceland Express er ferðaskipuleggjandi þ.e.a.s. er ekki flugrekandi, hefur ekki flugrekstrarleyfi né ferðaskrifstofuheimild. Komi til gjaldþrots hjá flugrekanda sem þeir leigja vél af hefur farþegi ekki kröfu á þrotabú flugrekandans en gæti sótt rétt sinn til Iceland Express. Fari Iceland Express í gjaldþrot á farþegi ekki kröfu á flugrekandann en gæti sótt rétt sinn í þrotabú Iceland Express. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Ferðamálastofu hefur fyrirtækið Express ferðir hins vegar ferðaskrifstofuleyfi og gilda því tryggingar um alferðir sé alferð keypt hjá þeim.