Þarfir þínar fyrir þjónustu 

Ef þú kýst að skipta við ákveðna ferðaskrifstofu, er mikilvægt að taka fram strax í upphafi, hvaða séraðstoð þú hefur þörf fyrir, þannig að ferðaskrifstofan gæti skráð þessar upplýsingar sem hluta af bókun þinni. Gleymdu svo ekki að sannreyna, hvort allt hafi verið skráð rétt.

    Flugfélögin notast við alþjóðlegt kóðunarkerfi til að auðkenna þá mismunandi þjónustu, sem þeim ber að veita fötluðum farþegum sínum. Spurningarnar, sem starfsmenn ferðaskrifstofa (eða flugfélaga) kunna að spyrja, geta stundum virst ágengar en þær eru nauðsynlegar til að komast að því, hvaða tegund af þjónustu þú þarfnast. Þeir geta t.d. spurt um eftirfarandi:
  • Hvaða tegund af fötlun háir þér?
  • Ertu fær um að ganga í gegnum alla flugstöðvarbygginguna eða þarftu hjólastól/kerru?
  • Ef þú þarft hjólastól, munt þú þá nota þinn eigin stól?
  • Er hægt að leggja stólinn saman eða er hann vélknúinn?  Jafnvel þó að starfsmenn flugfélagsins biðji ekki um þessar upplýsingar, ættir þú samt að láta þær í té. Þeir þurfa að vita um tegund rafhlöðu í hjólastólnum til að geta veitt þér örygga þjónustu. Þú ættir einnig að taka stýringuna (control box) af hjólastólnum og hafa hana í handfarangrinum þínum, svo að hún týnist eða skemmist ekki.
  • Þarftu aðstoðarmann frá flugfélaginu til að ýta hjólastólnum þínum?
  • Ertu fær um að ganga upp og niður landgöngustiga eða þarftu hjálp við að komast í og úr vélinni?
  • Getur þú flutt þig upp úr hjólastólnum án aðstoðar?
  • Ertu fær um að hreyfa þig inni í flugvélinni eða þarftu til þess hjólastól flugfélagsins?
  • Þarftu að fá upplýsingar um það hvort salerni um borð séu aðgengileg fyrir hjólastóla flugfélagsins?
  • Hvers konar aðstoðar þarfnast þú um borð (ef einhverrar)? Útskýrðu það nánar! Þjónustuliðar geta ekki veitt aðstoð við að mata farþega, lyfta þeim, sjá um boðskipti við aðra, gefa farþegum lyf eða hjálpað þeim við salernisferðir. Ef þú þarfnast hjálpar við ofangreint, þarftu að hafa með þér aðstoðarmann.
  • Hvaða tegund af sætum henta þér best?
  • Hefur þú lækningatæki meðferðis?
  • Þjáist þú af astma eða öðrum öndunarerfiðleikum?
  • Ef þú ert með alvarlegan sjúkdóm þarftu að láta flugfélagið vita. Það gæti verið að þú þyrftir að leggja fram staðfestingu þess, að heilbrigðisástand þitt leyfi flugferð, svokallað “Fitness to Fly” vottorð.


Bókun
Þér standa til boða allar tegundir af flugmiðum, svo sem á almennu farrými (economy) eða á viðskipta farrými (business class), en athugaðu þó, að þú færð kannski ekki í öllum tilfellum það þjónustustig sem þú krefst. Ef þú þarft t.d. rýmra fótapláss gæti sæti í almennu farrými reynst óhentugt.

Það er eindregið mælt með því, að þú bókir ferð þína og þörf fyrir þjónustu fyrirfram, helst með 7 daga fyrirvara, en þó ekki skemur en 48 klst. fyrir áætlaða brottför. Þetta ætti að tryggja, að aðstoðin, sem þú þarfnast, sé til staðar. Það gæti einnig komið í veg fyrir, að þú verðir fyrir óþarfa óþægindum. Skv. reglum um loftför er hámarksfjöldi fatlaðra um borð í flugvelum takmarkaður.  Það er háð stærð flugvélarinnar og því þjónustustigi sem farþegarnir þurfa að fá. Ef þú bókar með góðum fyrirvara, getur þú verið viss um, að þú verður ekki skilin(n) eftir. Ef þú þarft að afbóka ferð, átt þú auðvitað að láta flugfélagið vita sem fyrst, þannig að sæti þitt gæti nýst öðrum fötluðum farþegum.

Það borgar sig einnig að endurstaðfesta bókun þína og athuga, hvort hjálpin og séraðstoðin, sem þú baðst um, hafi verið skráð með pöntun þinni.

    Um borð
  • Gakktu úr skugga um, að þú sért með öll nauðsynleg lyf í handfarangrinum. Taktu með þér nóg, sem dugar þér, ef flugi skyldi seinka.
  • Ef þú þarft að notast við hjólastól flugfélagsins (on-board wheelchair), ætti það að koma fram í bókun þinni.
  • Ef þú ert með skerta heyrn eða sjón, ber starfsfólki flugfélagsins að gefa sig fram við sig og bjóða þér viðeigandi aðstoð, á meðan á fluginu stendur. Starfsfólki ber t.d. að útskýra öryggisreglurnar, eða það getur hjalpað þér við að opna matarpakkann.
  • Ef þú ert með öndunarerfiðleika og þarfnast auka súrefni á meðan á fluginu stendur, mun flugfélagið láta þig fá súrefnistæki. Sum flugfélög krefjast greiðslu fyrir þessa þjónustu. Þér er ekki heimilt að ferðast með þínn eigin súrefniskút. Ef þú þarft súrefni eingöngu í neyðartilfellum, er engin þörf á að panta sérstakan kút. Þér muni standa til boða neyðarsúrefnistæki, sem er í öllum flugvélum sem staðalbúnaður.

    Að fara um og frá borði
    Ef þú hefur undirbúið ferð þína vel, ætti veitt þjónusta að vera í samræmi við pöntun þína. Ef þú ferðast við hjólastól, þarftu að vita, hvernig farið er með hann á meðan á fluginu stendur. Það gæti verið, að handstýrður hjólastól, sem má fella saman, sé geymdur í farþegarýminu, ef hentugt pláss er til staðar, en sennilegra er að honum verði komið fyrir í farangursrýminu; vélknúnir hjólastólar fara þó ávallt í farangursrýmið.

    Hvað sem öðru líður, ættu flugvellir og flugfélög að leyfa þér að vera í þínum eigin hjólastól alla leið að flugvélahurðinni. Við komu á áfangastað ættu þeir einnig að hafa stólinn þinn til reiðu á sama stað. Sé hins vegar um vélknúinn hjólastól að ræða, gæti það reynst óframkvæmanlegt. Ef geyma þarf hjólastóllinn á einhvern sérstakan hátt af öryggisástæðum inni í farangursgeymslunni, eða á flugvöllum, þar sem lyfta þarf hjólastóla upp og niður stiga með sérbúnaði og starfsfólkinu þannig hætta búin, gæti farið svo, að þér yrði ekki leyft að vera í þínum eigin stóli.