Synjun á flutningi

Flugrekandi, umboðsmaður hans eða ferðaskrifstofa skal ekki synja farþega á grundvelli fötlunar um farskráningu í flug til eða frá flugvelli hér á landi og að fara um borð í loftfar á flugvelli hér á landi, enda hafi farþegi gilda farskráningu og farseðil. Þó er flugrekanda heimilt að synja um farskráningu í flug eða synja farþega um að fara um borð í flugvél á grundvelli fötlunar þar sem flugöryggiskröfur krefjast þess eða þegar stærð loftfarsins, dyr þess eða aðstæður á meðan flutningi stendur koma í veg fyrir að flutningur sé mögulegur.  Synji flugrekandi fötluðum farþega um farskráningu eða að fara um borð í loftfar skal hann greina honum frá ástæðum þess.

Þegar synja þarf fötluðum farþega um flutning á grundvelli flugöryggiskrafna skal flugrekandi, umboðsmaður hans eða ferðaskrifstofa gera viðhlítandi ráðstafanir til að leggja farþega til viðunandi kost á flutningi. Fatlaður einstaklingur sem neitað hefur verið um að fara um borð á grundvelli fötlunar sinnar sem og fylgdarmaður viðkomandi einstaklings skal eiga rétt á endurgreiðslu eða að flugleið þeirra verði breytt eins og nánar er kveðið á um í reglugerð nr. 574/2005.