Reynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs og deildarstjóri flugleiðsögudeildar
Sími: 569 4345
Fax: 562 3619
Netfang: reynir@caa.is
Reglugerð um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu tók gildi árið 2006 (rg. nr. 535/2006), reglugerðin byggir á reglugerð Evrópubandalagsins um flugleiðsögu í Sam-Evrópska loftrýminu. Reglugerðin leggur ákveðnar skyldur á herðar veitendum flugleiðsöguþjónustu og hefur flugleiðsögudeild það hlutverk að tryggja heldni þjónustuaðila við kröfur reglugerðarinnar. Deildin veitir starfsleyfi og annast eftirlit með þjónustuaðilum með starfsleyfi, þar með talið til starfsleyfishafa sem veitir þjálfun á sviði flugumferðarþjónustu skv. nýrri reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra
Deildin fer með skipulag loftrýmis yfir Íslandi, heimildaveitingar vegna t.d. veðurmælinga, ásamt ráðgjöf á þeim fagsviðum sem deildin starfar á.
Helstu verkefni deildarinnar eru:
- Stjórnsýsla og þátttaka í setningu reglugerða.
- Veiting starfsleyfa til veitenda flugleiðsöguþjónustu, þar með talið veitenda þjálfunar.
- Almennt eftirliti með flugleiðsöguþjónustu á Íslandi.
- Að taka afstöðu til tillagna Rannsóknarnefndar flugslysa og fylgja þeim eftir.
- Að taka þátt í nefndum EUROCONTROL og samstarfi Norðurlanda á þessu sviði, sem og samstarfi innan NAT svæðis ICAO.
- Að sjá um samræmingu og tillögugerð reglna varðandi flugleiðsöguþjónustu.