Sveinn V. Ólafsson, yfirmaður vottunar- og greiningarstofuSveinn V. Ólafsson, yfirmaður vottunar- og greiningarstofu
Beinn sími 569 4481
fax 562 3619
netfang sveinn@caa.is







Vottunar- og greiningastofa (VG) hefur með höndum málefni er varða vottun tengdri flugstarfsemi. Þau geta varðað loftför, gæðakerfi, flugleiðsöguþjónustu, o.fl.  Sérstök áhersla hefur alltaf verið á tegundarskírteini loftfara (TC), viðbótartegundarskírteini (STC) og  breytingar á loftförum. Samskipti við EASA er varðar þann málaflokk falla líka undir stofuna. VG starfar í nánu samstarfi við deildir Flugmálastjórnar Íslands og leiðbeinir viðskiptavinum stofnunarinnar.

Verkefni VG lúta að skráningu og tölfræðilegri greiningu á tilkynningaskyldum atvikum er verða í íslenskum loftförum, flugvöllum og hinu íslenska flugstjórnarsvæði. Atvik er verða um borð í flugvélum geta verið margvísleg. Allt frá smávægilegum bilunum til flugslysa. Markmiðið með skráningu þessara atvika er fyrst og fremst að koma auga á leitni í gögnunum er gætu orsakað alvarleg flugatvik eða jafnvel flugslys. Vottunar- og greiningastofa annast samskipti við alþjóðlegar stofnanir varðandi skráningu og greiningu atvika og kemur niðurstöðum á framfæri eftir því sem við á og annast almenn samskipti við flugrekendur, flugumferðastjórn, viðhaldsaðila, flugmenn og Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) varðandi tilkynningarnar.


Af hverju að tilkynna flugatvik?


Umhverfismál verða sífellt viðameiri málaflokkur og sama gildir í fluginu.  VG annast margskonar verkefni á því sviði og þau helstu tengjast hávaða/hljóðstigi (noise) og  útblæstri loftfara. Ennfremur er um að ræða tæknilega vinnu er tengist útblástursheimildum. 


Sveinn V. Ólafsson er yfirmaður vottunar- og greiningastofu. Sveinn lauk M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Virginia Polytechnic Institute & State University í Bandaríkjunum 1990,  M.Sc. í flugvélaverkfræði frá sama skóla 1988 og lokaprófi í vélaverkfræði 1986 frá  Háskóla Íslands.   
Auk hans starfar við stofuna Yngvi R. Yngvason.   Yngvi lauk B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2004 auk þess hefur hann einkaflugmannsreynslu.  Báðir hafa þeir unnið hjá Flugmálastjórn Íslands síðan 2005.
Hægt er að hafa samband í síma 569 4100.