Starfsleyfishafar flugskóla
Um fjárhagskröfur til flugskóla (FTO og TRTO) er fjallað í reglugerð um skírteini nr. 401/2008 sbr. 1. viðbætir a) við JAR-FCL 1.055 og skýringarefni IEM No. 2 JAR-FCL 1.055. Með vísan til þess og skulu starfsleyfishafar flugskóla afhenda Flugmálastjórn Íslands eftirfarandi upplýsingar vegna mats á fjárhagsstöðu:
Ársreikningur – Almennur skilafrestur 30. júní
- Afhenda þarf endurskoðaðan ársreikning eigi síðar en sex mánuðum eftir að viðkomandi reikningsári lýkur. Ársreikningurinn skal samanstanda af sundurliðuðum rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og sjóðsstreymi. Sé rekstur flugskóla hluti af samstæðu félags, skal leggja fram sundurliðað uppgjör rekstrareiningarinnar. Ársreikningur án áritunar löggilds endurskoðanda telst ekki fullnægjandi.
Rekstrar- og efnahagsáætlun – Almennur skilafrestur 31. mars
- Rekstraráætlun fyrir næsta reikningsár skal vera með sundurliðaða tekju- og kostnaðarliði og í samanburðarhæfu formi við ársreikning. Sé rekstur flugskóla hluti af samstæðu félags, skal leggja fram sundurliðaða rekstraráætlun rekstrareiningarinnar. Þá skal áætlunin innihalda lausafjáráætlun fyrir komandi rekstrarár. Áætlunin skal vera sundurliðuð á mánuði. Greina skal sérstaklega frá gefnum reikniforsendum og öllum rekstrarlegum breytingum frá fyrra ári. Ekki er hægt að framkvæma fjárhagsmat sé þessum kröfum Flugmálastjórnar um framsetningu ekki fylgt.
Leiki vafi á því að starfsleyfishafi flugskóla uppfylli fjárhagskröfur áskilur Flugmálastjórn sér rétt til að fá álit frá endurskoðanda á vegum stofnunarinnar á kostnað leyfishafa sbr. gr. 10.3 í gjaldskrá fyrir þjónustu Flugmálastjórnar Íslands nr. 661/2009 ásamt síðari breytingum.
Farið er með allar fjárhagsupplýsingar leyfishafa sem trúnaðarmál.
Sé óskað eftir fresti til að skila umbeðnum gögnum skal gera það skriflega með rökstuðningi eins fljótt og kostur er og eigi síðar en á tilsettum skiladegi.
Gögnum þessum skal skila beint til deildarstjóra fjármáladeildar Flugmálastjórnar Íslands.
Yfirferð gagna og útgefið mat Flugmálastjórnar: Flugmálastjórn áskilur sér 30 virka daga til að fara yfir gögn og framkvæma fjárhagsmat. Undantekningar geta verið á skilafresti ef endurnýjun heimildar er gerð með fleiri en 30 virkum dögum fyrir almennan skilafrest.
Sjá einnig kröfur í rg. um flugskóla nr. 692/1999 sem varðandi skráða flugskóla. Sömu kröfur og tilgreindar eru að framan gilda um skráða skóla nema að leggja má fram einfaldari gögn að höfðu samráði við Flugmálastjórn.