Flugmálastjórn Íslands hefur sett sér stefnumið á sjö sviðum. Í fyrsta lagi varðandi viðskiptavini. Annað stefnumiðið nær til meginferla stofnunarinnar þar sem áhersla er á skjalfestingu, gæðakerfi og rekjanleika. Síðan er fjallað um mannauð með áherslu á menntun, þjálfun og fjölbreyttan bakgrunn starfsmanna. Í fjármálum er sérstök áhersla á að greiðslur þeirra sem heimildir hafa standi það vel undir kostnaði að ekki komi til tafa á afgreiðslu og við ákvörðun gjaldskrár sé tekið tillit til alls kostnaðar, svo sem þjálfunar starfsmanna og almennra samskipta við erlendar stofnanir. Lögð er áhersla á að eiga góð samskipti við alla aðila, bæði atvinnurekendur á sviði flugmála, áhugamannafélög, hagsmunaaðila og einstaklinga. Styðja skal rannsóknir í einhverjum mæli til að styðja vandaða ákvörðunartöku og bæta eftirlit. Hvað varðar umhverfismál er stefnan sú að fylgja Evrópuþjóðunum (ECAC) í þeim málaflokki.
Viðskiptavinir/hagsmunaaðilar
- Tryggja að flugöryggi sé ætíð yfir viðurkenndum öryggismörkum og flugvernd fullnægjandi.
- Halda uppi öflugu og sanngjörnu eftirliti með flugstarfsemi og sjá til þess að hún njóti viðurkenningar á alþjóðavettvangi eins og við á.
- Stuðla að því að hvers konar flugstarfsemi dafni hér á landi í sátt við samfélagið og umhverfið.
- Veita þeim sem stunda atvinnurekstur í flugi og öðrum þeim sem flugsamgöngur
- nota faglega og góða þjónustu sem og vandaða úrlausn stjórnsýsluerinda.
- Veita almenningi, hagsmunaaðilum, ráðuneyti og starfsmönnum upplýsingar um markmið og starfsemi stofnunarinnar. <>Gæta hagsmuna aðila í flugi með þátttöku í fundum og starfsemi alþjóðlegra stofnana.
Ferlar
- Tryggja að allir ferlar varðandi heimildarveitingar og eftirlit séu skjalfestir og þeim lýst í gæðakerfi. Úttektum ljúki alltaf með skýrslu og eftirfylgni.
- Framkvæmd einstakra verkferla sé skjalfest í skrám/gögnum og afgreiðsla mála/heimilda rekjanleg lið fyrir lið.
- Leggja áherslu á að munnlegar upplýsingar geti aldrei verið afgreiðsla eða heimild heldur aðeins leiðbeining.
Mannauður
- Leggja áherslu á að stofnunin hafi á að skipa hæfu og dugmiklu starfsfólki með góða og fjölbreytta menntun.
- Stuðla að menntun og þjálfun starfsmanna og efla góðan starfsanda.
- Starfsmenn njóti góðs aðbúnaðar.
- Leitað sé til sérfræðinga utan stofnunar eftir því sem nauðsyn krefur.
Rannsóknir og þróun
- Styðja rannsóknir og þróun á sviði flugmála til að stuðla að og auðvelda vandaða ákvörðunartöku og eftirlit.
Samstarf
- Efla samskipti og samráð við innlenda og erlenda aðila sem að flugsamgöngum koma til hagsbóta fyrir íslensk flugmál.
- Sérstök áhersla skal lögð á þátttöku í evrópsku samstarfi, samráði við rekstraraðila í flugi svo og áhugamannafélög hérlendis.
Fjármál
- Tryggja í samstarfi við samgönguráðuneytið að úttektir og vinna við heimildarveitingar frestist ekki sakir fjárskorts.
- Aldrei myndist biðraðir þar sem beðið er eftir úrlausn mála.
- Greiðsla fyrir þjónustu greiðist af þeim sem hennar njóta og skal eftirlit með leyfishöfum standa undir sér.
Umhverfismál
- Fylgja skal stefnu ESB og ECAC hvað varðar útblástur og hávaða en sérstaklega skal þó huga að sérstöðu Íslands í flugsamgöngum.