Viðbótartegundarskírteini - Supplemental Type Certificates (STC)
Þann 1. júní 2005 gerðist Ísland aðili að Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA). Eftir þá dagsetningu er aðeins heimilt að nota STC sem eru með EASA samþykki fyrir flugvélar skráðar á Íslandi. Ef slíkt samþykki er ekki fyrir hendi þarf að afla samþykkis EASA. Öll STC sem voru í flugvélum skráðum á íslandi fyrir 1. júni 2005 er hægt að nýta áfram án sérstaks samþykkis EASA, þau mynda afarétt ("grandfatherright"). Sjá nánar reglugerð ESB 1702/2003 (partur 21).
STC í notkun fyrir 1. júní 2005
Þau STC sem voru í íslenskum flugvélum fyrir inngönguna í EASA hafa nú verið skráð í gagnagrunn Flugmálastjórnar. Að vísu er sá annmarki á þessum skráningum að þetta eru aðeins þær skráningar sem flugrekendur og eigendur flugvéla tilkynntu um fyrir inngönguna. Af gögnunum að dæma má ætla að þau séu nokkuð tæmandi fyrir stærri flugvélar. Fyrir minni flugvélar vantar örugglega talsvert uppá að þessu skráning sé eins yfirgripsmikil og þörf væri á.
Smelltu hér til að skoða öll skráð STC á Íslandi raðað eftir flugvélategundum
Frekari upplýsingar veitir Sveinn V. Ólafsson (sveinn@caa.is), verkfræðingur, flugöryggissviði.
Evrópsk STC
EASA Hér má finna listar sem EASA hefur gefið út síðan 03/06/2004. "Grandfathered" STC sem EASA hefur tekur gild frá JAA síðan 29/09/2003 og eru gefin út þar á undan eru ekki listuð. EASA áformar að bæta við listann öllum STC sem voru samþykkt á milli október 2003 og júní 2004.
Krækja á síður evrópskra flugmálastjórna
Hér má skoða STC sem skráð eru hjá evrópskum flugmálastjórnum:
Þýska flugmálastjórnin - LBA
Breska flugmálastjórnin - UK CAA
Danska flugmálastjórnin - SLV
Sænska Flugmálastjórnin
Flugöryggissamtök Evrópu - JAA
Bandarísk STC
Bandaríska flugmálastjórnin - FAA Athugið að FAA STC þurfa viðurkenningu EASA til að vera lögleg í Evrópu.